Skrifstofustarf
Hjálpræðisherinn á Íslandi auglýsir eftir metnaðarfullum einstaklingi tímabundið til starfa í bókhalds- og skrifstofustörfum. Við leitum að einstaklingum sem eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt og sem búa yfir reynslu af bókhaldsvinnu og öðrum skrifstofustörfum. Staðan er auglýst til 6 mánaða með möguleika á framtíðarvinnu.
Hjálpræðisherinn er með aðsetur á Suðurlandsbraut 72.
· Bókun reikninga og eftirfylgni með rafrænu samþykktarferli
· Afstemmingar, bæði fjárhags- og viðskiptamanna- og lánadrottnabókhalds
· Reikningagerð
· Almenn skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
· Haldbær reynsla og þekking á bókhaldsstörfum er kostur
· Góð almenn tölvuþekking
· Frumkvæði, sjálfstæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
· Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
· Þekking á helstu bókhaldskerfum