
Skjalavörður
Þjóðskjalasafn Íslands óskar eftir að ráða þjónustulundaðan skjalavörð til starfa á miðlunar- og rannsóknarsvið safnsins. Starfið er á fageiningu upplýsingaþjónustu og snýr að afgreiðslu og svörun fyrirspurna frá viðskiptavinum Þjóðskjalasafns ásamt þátttöku í öðrum verkefnum safnsins eftir þörfum og atvikum. Um fullt starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Afgreiða notendur safnsins og beiðnir um aðgang að skjölum
- Svara skriflegum fyrirspurnum úr safnkosti
- Ráðleggja og leiðbeina um notkun skjalasafna
- Leiðbeina gestum í lestrarsal og veita ráð um upplýsingaleit
Menntunar- og hæfniskröfur:
- BA-próf í sagnfræði, lögfræði eða sambærilegum greinum
- Menntun í skjalfræði er kostur
- Þekking og reynsla af skjalasöfnum er æskileg
- Þekking og reynsla af lagaumhverfi um aðgang að opinberum upplýsingum er æskileg
- Góð kunnátta í algengum notendaforritum nauðsynleg
- Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
- Færni í einu Norðurlandamáli er kostur
- Mjög góð samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og rík þjónustulund
Um Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands er menningar- og stjórnsýslustofnun sem varðveitir heimildir um sögu þjóðarinnar og leiðir skjalavörslu og skjalastjórn hins opinbera. Um 50 manns starfa hjá Þjóðskjalasafni. Um þessar mundir standa yfir miklar breytingar í starfseminni og því um spennandi tækifæri að ræða fyrir kraftmikinn aðila. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vefnum skjalasafn.is.
Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við viðkomandi stéttarfélag. Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Þjóðskjalasafns Íslands við ráðningu í starfið.
Nánari upplýsingar veitir Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.
English
Icelandic










