NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Skipulögð og áreiðanleg aðstoðarkona óskast

Ég er 57 ára gömul kona búsett í Breiðholti að leita mér að persónulegum aðstoðarkonum í hlutastarf. Starfið felst í að aðstoða mig við öll þau verkefni sem ég tek mér fyrir hendur, en ég þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs (klæða mig, koma mér milli staða, eldhússtörf o.s.frv.). Í frítíma mínum hef ég gaman að bakstri, útivist, fara í leikhús, göngutúra og ferðast.

Ég er með mikið kattarofnæmi þannig umsækjandi má ekki eiga kött eða vera í kringum ketti.

Aðstoðarkonur mínar þurfa vera íslenskumælandi, vera áreiðanlegar, umhyggjusamar, skipulagðar og heilsuhraustar. Konur á aldrinum 30 ára og eldri, með reynslu af umönnunarstörfum sem eru tilbúnar til að vinna við persónulega aðstoð eru hvattar til að sækja um. Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á NPA miðstöðin - NPA miðstöðin
Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.

Advertisement published15. April 2026
Application deadline5. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Type of work
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags