NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Óskað er eftir NPA-aðstoðarfólki fyrir 11 ára dreng á Selfossi

Óskað er eftir aðstoðarfólki í NPA fyrir 11 ára dreng sem þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs. Um er að ræða hressan og yndislegan dreng sem þarf umhyggju og aðstoð bæði á daginn og á næturnar.

Leitað er að duglegum, hlýjum og ábyrgum einstaklingum sem treysta sér til að sinna dag-, kvöld- og helgarvöktum, ásamt stöku næturvöktum. Fjölskyldan býr á Selfossi.

Endanlegt vaktafyrirkomulag liggur ekki fyrir og verður það, eftir því sem kostur er, ákveðið í samráði við aðstoðarfólk.

Hæfniskröfur:

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Umsækjandi þarf að vera líkamlega hraust/ur
  • Bílpróf er nauðsynlegt
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur, en ekki skilyrði

Starfið byggir á hugmyndafræði NPA (notendastýrð persónuleg aðstoð). Nánari upplýsingar um hugmyndafræðina má finna á vef NPA miðstöðvarinnar.

Hér er um að ræða barn sem býr hjá foreldrum sínum og því er mikilvægt að umsækjendur beri virðingu fyrir friðhelgi heimilis og fjölskyldulífi. Fjölskyldan leitar að hressum og jákvæðum einstaklingum sem vilja taka þátt í að skapa öruggt, hlýtt og kærleiksríkt umhverfi fyrir dásamlegan dreng.

Um ráðningu gildir kjarasamningur NPA miðstöðvarinnar, Eflingar og SGS. NPA miðstöðin er umsýsluaðili NPA samningsins og sér meðal annars um launagreiðslur og ráðningarsamninga.Foreldrar drengsins sjá um starfsviðtöl.

Nánari upplýsingar um starfið veitir fjölskyldan í síma 895-9515.

Advertisement published24. March 2026
Application deadline5. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Physical fitnessPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags