Kaldvík
Kaldvík
Kaldvík

Starfsmaður í fiskeldi á Austfjörðum

Kaldvík leitar að starfsfólki í almenn fiskeldisstörf við eldisstöðvar fyrirtækisins á Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði.

Við leitum að duglegum, samviskusömum og jákvæðum liðsauka til að vinna með okkur að fjölbreyttum verkefnum sem fiskeldisfólk sinnir á Austfjörðum.

Starfið felur í sér að sinna almennum eldisstörfum, taka þátt í að ná þeim líffræðilegu og fjárhagslegu markmiðum sem sett eru og jafnframt tryggja öryggi og góða dýravelferð.

Vinnutími er 7 dagar vinna og 7 dagar frí á 12 klukkustunda vöktum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinna almennum eldisstörfum

  • Eftirlit með búnaði og bátum

  • Skráningar og skýrslugerð

  • Tryggja öryggi starfsfólks og velferð fisks

  • Tryggja góða umhirðu á vinnustað

Starfsmaður getur einnig þurft að sinna öðrum verkefnum eftir þörfum, svo sem:

  • sækja námskeið

  • aðstoða verktaka

  • aðstoða nýliða

  • hjálpa til á ólíkum starfstöðvum félagsins

  • og önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • 15 metra skipstjórnarréttindi eða smáskipavélarvarðaréttindi er kostur
  • Reynsla, þekking og skilningur á fiskeldi er kostur

  • Frumkvæði, áhuga og metnað í starfi

  • Góða samskiptahæfni og jákvætt hugarfar

  • Getu til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi

Fríðindi í starfi
  • Fæði

  • Heilsu- og menntunarstyrkir

  • Góð vinnuaðstaða og tækifæri til útivistar

  • Fjölskylduvænn vinnustaður

Advertisement published4. March 2026
Application deadline25. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Strandgata 18, 735 Eskifjörður
Type of work
Professions
Job Tags