Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Sjúkraliði á heilsugæslustöð HVE Stykkishólmi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) Heilsugæslan Stykkishólmi óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa. Ákjósanlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Starfshlutfall er 50%. Möguleiki er á hærra starfshlutfalli ef viðkomandi hefur áhuga á að vinna einnig á Öldrunardeild HVE Stykkishólmi sem staðsett er í sama húsi og heilsugæslan.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sjúkraliði ber ábyrgð á að veita skjólstæðingum sínum umönnun og hjúkrun í samræmi við markmið og stefnu hjúkrunar hjá stofnuninni. 

Sjúkraliði ber ábyrgð á störfum sínum í samræmi við lög nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn og reglugerð nr. 511/2013 um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Sjúkraliða og almennum starfsmanni ber að fylgja faglegum fyrirmælum næsta yfirmanns, og sinna störfum sínum af árvekni, trúmennsku og virðingu í samræmi við faglegar kröfur sem gerðar eru til starfsins á hverjum tíma.  

Staðan felur í sér ýmis verk í heimahjúkrun og tilfallandi verk á heilsugæslu

Menntunar- og hæfniskröfur

Gerð er krafa um 

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi. 
  • Góða íslensku kunnáttu. 
  • Góða hæfni í mannlegum samskiptum. 
  • Stundvísi, sjálfstæð vinnubrögð og faglegan metnað.
Advertisement published6. August 2025
Application deadline29. August 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Basic skills
Location
Austurgata 7, 340 Stykkishólmur
Type of work
Professions
Job Tags