

Sjúkraliðar á sjúkradeild
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Óskum eftir að ráða sjúkraliða til starfa um er að ræða 50% til 100% störf eftir samkomulagi í vaktavinnu.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Störf sjúkraliða á sjúkradeild eru bæði fjölbreytt og krefjandi. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.
Sjúkraliðar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Faglegur metnaður
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hlýtt og jákvætt viðmót
- Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti
- Starfsreynsla er kostur












