Sérnámsstöður í barnalækningum
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í hlutasérnámi til tveggja ára í barnalækningum. Sérnámið er vottað af mats- og hæfisnefnd heilbrigðisráðuneytisins í samræmi við reglugerð 856/2023 og byggt á marklýsingu evrópsku barnalæknasamtakanna (European Academy of Pediatrics). Sérnámið fer fram á Barnaspítala Hringsins. Auk þess er boðið upp á 3 mánaða viðbótarþjálfun á barna- og unglingageðdeild Landspítala.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er á bilinu júní til ágúst 2026, en gert er ráð fyrir að upphaf ráðningar hjá þeim umsækjendum sem eru að klára sérnámsgrunn á Landspítala verði beint í kjölfarið af honum. Ef semja á um orlof þar á milli er það gert í samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar. Fimmtudaginn 17. september er móttökudagur sérnáms.
Sjá .
Sjá almennt um sérnám í læknisfræði, og .
Education and requirements
Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
Íslenskt lækningaleyfi
Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf
Responsibilities
Vinna og nám á bráðamóttöku barna, legudeildum og nýburadeild, dag- og göngudeildum ásamt vaktþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
Virk þátttaka í fræðslu og kennslu er hluti af sérnáminu
Þátttaka í gæða- og vísindavinnu. Sérnámlæknir á að ljúka a.m.k. einum klínískum leiðbeiningum/ verklagsreglum og einu gæðaverkefni skv. stöðlum Landspítala
Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
Framgangur milli námsára er ákvarðaður með framvindumati og er launasetning í samræmi við staðfesta framvindu
Þátttaka í fræðslu og hermikennslu