Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun

Sérfræðingur við þróun á veiðarfæratækni

Hafrannsóknastofnun auglýsir tímabundið starf sérfræðings til tveggja ára. Starfið snýr að rannsóknum og þróun á veiðarfæratækni sem stuðlar að bættri kjörhæfni, minni áhrifum á hafsbotninn og lækkun kolefnisspors.

Starfið er hluti af Marine Guardian verkefninu sem styrkt er af Horizon áætlun Evrópusambandsins.

Um stofnunina

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs, vatna og í fiskeldi. Hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur auk aðalstöðva í Hafnarfirði starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 200 manns í fjölbreyttum störfum.

Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna - Þor

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Heimildavinna
  • Samræming á gagnasöfnun meðal fjölbreytts hóps rannsakenda
  • Skipulagning funda
  • Skýrsluskrif og vinna með fulltrúum atvinnugreinarinnar varðandi þróun og nýsköpun í veiðarfærum og tækni

Umsækjandi kemur til með að fá þjálfun við að skipuleggja vinnustofur með hagsmunaaðilum en unnið verður náið með atvinnugreininni við þróun veiðitækni. Ferðalög eru nauðsynleg vegna árlegra funda eða ráðstefna, þjálfunar og til að framkvæma prófanir á veiðarfærum á sjó.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða eða sambærileg menntun í líffræði, verkfræði eða auðlindastjórnun
  • Þriggja ára reynsla af vinnu beint með eða innan sjávarútvegs, helst tengd veiðarfærum  eða þróun veiðitækni
  • Reynsla af vinnu á sjó er mikill kostur
  • Reynsla af hagnýtri vinnu við veiðarfæratækni er æskilegt
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu/hæfni í gagnagreiningu, gagnavinnslu eða tölvunarfræði
  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. 
  • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar. 
  • Reynsla af skýrslugerð er kostur
  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi. 
  • Góð almenn tölvukunnátta. 
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. 
Umsókn skal fylgja:
  • Ítarleg náms- og ferilskrá 
  • Afrit af prófskírteinum 
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið 
  • Tilnefning a.m.k. tveggja meðmælenda.

Sótt er um starfið á Starfatorgi. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknir til greina. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur. 

Starfshlutfall er 100%

Nánari upplýsingar veita

Pamela J. Woods, Fiskifræðingur - [email protected]

Sólveig Lilja Einarsdóttir, Mannauðsstjóri - [email protected] 
Jónas Páll Jónasson, Sviðsstjóri - [email protected]

Advertisement published9. July 2025
Application deadline15. August 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Fornubúðir 5, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Fishing gear technicianPathCreated with Sketch.ResearchPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Report writingPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Research data analysis
Professions
Job Tags