Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Sérfræðingur óskast til starfa

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leitar að öflugum sérfræðingi með framúrskarandi stafræna færni og gagnalæsi til að vinna að stafrænni þróun, sinna áætlanagerð og framkvæmd fjárlaga.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða starf í einingunni Fjármál, stafræn þróun og innri þjónusta og heyrir starfið undir rekstrarstjóra ráðuneytisins. Starfið felur í sér mikla gagnavinnu og gagnaþróun sem snýr að fjármálum og áætlanagerð innan málaflokka ráðuneytisins sem og í tengslum við stofnanir þess. Viðkomandi tekur einnig þátt í stafrænni þróun ráðuneytisins með því að þróa góð og gagnvirk gögn sem nýtast við ákvarðanatöku. Sérfræðingurinn kemur að samskiptum við stofnanir og þróun mælikvarða og nýtingu fjármagns innan málaflokka. 

Starfið krefst greinagóðrar stafrænnar færni þar sem unnið er með gagnagrunna og leitað gagnvirkra leiða til að safna og miðla upplýsingum. Ráðuneytið leggur ríka áherslu á hagnýtingu gervigreindar og er það eitt af hlutverkum  sérfræðingsins að styðja við þá áherslu.  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólanám sem nýtist í starfi (s.s. fjármálaverkfræði, hagfræði, viðskiptafræði)
  • Mjög góð greiningarfærni og geta til að miðla upplýsingum
  • Framúrskarandi stafræn færni og geta til að vinna með gögn
  • Reynsla af fjármálavinnu og áætlanagerð
  • Mjög góð samskipta- og samvinnufærni
  • Geta til að starfa í hópi/teymi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Rík þjónustulund
  • Mjög góð enskukunnátta
  • Góð færni í íslensku í rituðu máli
Advertisement published29. April 2026
Application deadline11. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags