Textílmiðstöð Íslands
Textílmiðstöð Íslands
Textílmiðstöð Íslands

Sérfræðingur í vefnaði

Við leitum að vefara sem hefur víðtækan áhuga á vefnaði, jafnt hefðbundnum sem starfrænum. Viðkomandi þarf að kunna hefðbundinn vefnað og hafa áhuga á stafrænum vefnaði, sem honum gefst tækifæri til að læra, en í TextílLabi Textílmiðstöðvarinnar eru tveir stafrænir vefstólar.

Starfið er mjög fjölbreytt og viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum s.s. setja upp í vefstól, miðla sinni kunnáttu, taka þátt í innlendum og erlendum samstarfsverkefnum og læra nýja hluti.

Hæfniskröfur:

Menntun á sviði textíls

Þekking og reynsla á hefðbundnum vefnaði

Samskiptafærni

Dugnaður við að kynna sér og afla sér nýrrar þekkingar

Áhugi á stafrænni tækni

Starfið er hlutastarf, sveigjanlegur vinnutími en mikilvægt að hafa í huga að álagið er mest í byrjun mánaða.

Umsóknarfrestur er til og með 2. mars 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veitir:

Elsa Arnardóttir forstöðumaður netfang;

[email protected]

Advertisement published30. January 2025
Application deadline2. March 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Þverbraut 1, 540 Blönduós
Árbraut 31, 540 Blönduós
Type of work
Professions
Job Tags