Datera ehf.
Datera ehf.
Datera ehf.

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu

Datera óskar eftir metnaðarfullum einstaklingi til að bætast í öflugan hóp sérfræðinga í stafrænni markaðssetningu. Viðkomandi mun fá tækifæri til að vinna með fjölbreyttum og áhugaverðum viðskiptavinum og sinna krefjandi verkefnum í skapandi og lifandi umhverfi.

Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á stafrænni markaðssetningu og er tilbúinn að tileinka sér þekkingu á árangursríkum stafrænum auglýsingaherferðum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetning og stýring stafrænna herferða

  • Sérhæfð vinna með leit og leitarvélabestun 

  • Markviss samskipti og ráðgjöf við viðskiptavini

  • Greining gagna og skýrslugerð til að meta árangur herferða

  • Áætlanagerð og þátttaka í stefnumótun

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi

  • Reynsla af vinnu við stafrænar auglýsingar er mikill kostur

  • Þekking og reynsla af Facebook og Google auglýsingakerfunum er mikill kostur

  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund

  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og vilji til að þróast í starfi

  • Gott vald á íslensku og góð máltilfinning

Um Datera

Datera er þekkingar- og ráðgjafafyrirtæki á sviði markaðssetningar og birtinga. Við sérhæfum okkur í gagnadrifnum og sjálfvirkum auglýsingaherferðum, leitarvélaherferðum og almennum birtingaáætlunum. Við hámörkum árangur og nýtingu markaðsfjár viðskiptavina okkar með þekkingu, innsæi og nýjustu tæknilausnum á sviði stafrænnar markaðssetningar.

Að vinna hjá Datera
  • Lifandi og skemmtilegt starfsumhverfi í miðbæ Reykjavíkur

  • Greiddur hádegismatur 2-3 sinnum í viku

  • Mánaðarlegir fræðslumorgnar

  • Sveigjanlegur vinnutími

  • Öflugt félagslíf

Umsóknir

Umsóknarfrestur er til 24. apríl 2025.

Advertisement published9. April 2025
Application deadline24. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Laugavegur 7, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags