Coripharma ehf.
Coripharma ehf.
Coripharma ehf.

Sérfræðingur í skjölun og utanumhaldi

Coripharma leitar að einstaklingi sem hefur metnað fyrir skipulagi, skráningu og utanumhaldi á gögnum tengt stöðugleikarannsóknum á lyfjum. Viðkomandi þarf að hafa getu til að vinna sjálfstætt og haga vinnu sinni í samræmi við tímalínur. Stöðugleikadeild er hluti af Þróunarsviði Coripharma og sér um mælingar á stöðugleika lyfja í þróun og á markaði.

Aðalstarf sérfræðings í skjölun og utanumhaldi stöðugleikasýna er móttaka sýna, uppsetning geymsluþolsrannsókna, útgáfa gæðaskjala og utanumhald stöðugleikasýna fyrir mælingar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka sýna
  • Uppsetning og framkvæmd stöðugleikarannsókna
  • Útgáfa gæðaskjala
  • Skráning, eftirfylgni og skipulag á sýnum
  • Utanumhald gagna


Menntunar- og hæfniskröfur

  • B.Sc. í raunvísindum eða háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af vinnu í GMP gæðakerfum er kostur
  • Þekking á stöðugleikarannsóknum er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta


Fríðindi

  • Mötuneyti
  • Sveigjanlegur vinnutími

Hjá Coripharma starfar fjölbreyttur hópur einstaklinga með ólíka menntun og bakgrunn, í dag starfa um 220 einstaklingar hjá fyrirtækinu. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki.

Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Advertisement published18. September 2025
Application deadline29. September 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ResearchPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Research data analysis
Professions
Job Tags