
Skatturinn
Skatturinn fer með álagningu og innheimtu skatta, gjalda og tolla auk þess að sinna eftirliti með skattskilum og viðskiptum og flutningum yfir landamæri.
Sérfræðingur í skjalastjórn
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi í skjalastjórn til að ganga til liðs við okkur í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík. Um er að ræða starf til eins árs vegna afleysingar.
Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og vernd við samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á skjalastjórn Skattsins
- Umsjón með GoPro Foris skjalastjórnunarkerfi
- Umsjón með skráningu, varðveislu og miðlun skjala þ.m.t. skil Þjóðskjalasafns
- Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk varðandi skjölun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.a.m. á sviði bókasafns- og upplýsingafræði
- Góð tölvukunnátta
- Reynsla af skjalastjórn æskileg
- Reynsla af því að starfa að kerfisumsjón í GoPro Foris er kostur
- Góð færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð
Advertisement published16. February 2026
Application deadline26. February 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Katrínartún 6
Type of work
Professions
Job Tags



