Orkuveitan
Orkuveitan
Orkuveitan

Upplýsinga- og skjalastjórnun hjá Orkuveitunni - tímabundið starf

Orkuveitan leitar að drífandi einstakling til að leiða áfram innleiðingu og þróun skjala- og upplýsingastjórnunar innan Orkuveitunnar og dótturfélaga hennar.

Hlutverkið snýst um að styðja við daglega notkun WorkPoint skjalakerfisins, tryggja samræmt verklag í skráningu, varðveislu og aðgengi skjala og veita starfsfólki skýra leiðsögn og stuðning við að tileinka sér nýtt vinnulag. Jafnframt felur starfið í sér að leiða umbætur og breytingar á sviði skjalamála í takt við stafræna þróun og breytt vinnulag.

Starfið krefst náins samstarfs við stjórnendur, sérfræðinga og tækniteymi þvert á fyrirtækið. Því er mikilvægt að viðkomandi njóti þess að vinna með fólki, leiða aðra til árangurs og miðla þekkingu á skýran og hvetjandi hátt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða og styðja við innleiðingu og áframhaldandi þróun WorkPoint skjalakerfisins í nánu samstarfi við notendur, tækniteymi og birgja 
  • Leiða umbætur og breytingar á sviði skjalamála í takt við stafræna þróun og breytt vinnulag 
  • Ábyrgð á skjala- og upplýsingamálum móðurfélags og dótturfélaga Orkuveitunnar 
  • Mótun verklags og þróun skjalastefnu til framtíðar með áherslu á hagnýtingu upplýsinga, varðveislu og stjórnun þekkingar 
  • Tryggja ábyrga meðhöndlun upplýsinga og skjala, þar á meðal varðveislu, aðgengi og eyðingu í samræmi við stefnu, ferla og lög og reglur um opinber skjalasöfn og upplýsingalög  
  • Umsjón með skjalastjórnarkerfi, þar á meðal aðgangsstýringum, leyfismálum og samræmingu milli eininga 
  • Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk og stjórnendur í skjala- og upplýsingastjórnun 
  • Taka þátt í samráði um stefnu og framtíðarsýn fyrir skjala- og upplýsingastjórn innan Orkuveitunnar. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði upplýsingafræði eða sambærileg menntun 
  • Reynsla af sambærilegum störfum er nauðsynleg 
  • Þekking á Microsoft 365 lausnum og sérstaklega Sharepoint æskileg 
  • Reynsla af WorkPoint skjalakerfi æskileg 
  • Góð skilningur á lögum og reglum sem varða skjalamál og upplýsingastjórnun 
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að miðla þekkingu á skýran og hvetjandi hátt 
  • Hæfni til að leiða breytingar og sjálfstæð vinnubrögð  
  • Skipulagshæfni og áhugi á að bæta og einfalda verklag 
Advertisement published12. February 2026
Application deadline28. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Change managementPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.SharePointPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags