Samgöngustofa
Samgöngustofa
Samgöngustofa

Sérfræðingur í skipatæknideild

Samgöngustofa leitar að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi til starfa á skipatæknideild. Starfið er fjölbreytt og krefjandi innan alþjóðlegs starfsumhverfis og felst í faglegu eftirliti með skipum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirferð og mat á hönnunargögnum skipa til samræmis við viðeigandi lög og reglur, þar á meðal teikningar og önnur tæknigögn vegna nýsmíða, breytinga, viðgerða og innflutnings.
  • Eftirlit með og framkvæmd mælinga á skipum ásamt útgáfu mælibréfa.
  • Þátttaka í eftirliti með stöðugleika skipa.
  • Virk samskipti og samvinna við hönnuði, skipasmíðastöðvar innanlands og erlendis, útgerðir og viðurkennda skoðunaraðila.
  • Þátttaka í þróun verklags innan vottaðs gæðakerfis og öðrum verkefnum í samstarfi við deildarstjóra.

Við leitum að einstaklingi með öguð vinnubrögð, tæknilega innsýn og góða samskiptahæfni sem nýtist í fjölbreyttu og þverfaglegu samstarfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í skipa- og vélaverkfræði, skipatækni eða annarri sambærilegri verk- eða tæknigrein.
  • Nákvæmni og skipulagshæfni í vinnubrögðum.
  • Góð hæfni í gagnrýninni hugsun og greiningu tæknilegra gagna.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Góð samskipta- og samvinnuhæfni, bæði á íslensku og ensku.
  • Sterk ferla- og umbótahugsun.
Advertisement published25. June 2025
Application deadline7. July 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags