Jarðboranir
Jarðboranir
Jarðboranir

Rekstrarstjóri viðhalds og þjónustu

Jarðboranir leita að öflugum aðila í starf rekstrarstjóra viðhalds og þjónustu hjá félaginu. Rekstrarstjóri viðhalds og þjónustu leiðir skipulagningu og stefnumótun á sviði viðhalds, þjónustu, birgða- og innkaupamála. Hann ber ábyrgð á daglegum rekstri þjónustustöðva félagsins og þjónustuframboði til verkstaða. Rekstrarstjóri viðhalds og þjónustu vinnur náið með viðhalds- og þjónustuteymi, innkaupateymi og yfirstjórn til að tryggja hagræði, áreiðanleika og gæði þjónustu.

Starfið er fjölbreytt, krefjandi og lærdómsríkt og býður upp á spennandi tækifæri fyrir rétta manneskju.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða skipulagningu og stefnumótun á sviði viðhalds og þjónustu
  • Umsjón með daglegum rekstri viðhalds og þjónustudeilda
  • Leiða viðhalds-, tækni- og þjónustuteymi
  • Áætlanagerð og kostnaðargreining
  • setja upp ferla fyrir þjónustubeiðnir og tryggja gæði og skilvirkni þjónustu
  • Samskipti við hlutaðeigandi aðila innan sem utan fyrirtækisins
  • Eftirlit með kostnaði og frumkvæði í að leita leiða til hagkvæmi í rekstri.
  • Leiðtogi starfsstöðvar í öryggis- og umhverfismálum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða í verk- eða tæknifræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi er æskileg
  • Reynsla af sambærilegum störfum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Gott vald á íslensku og ensku, talaðri sem ritaðri
  • Geta til að koma fram fyrir hönd fyrirtækisins í tengslum við samningagerð
Advertisement published24. June 2025
Application deadline8. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Álhella 3, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags