Alvotech hf
Alvotech er fjölþjóðlegt hátæknifyrirtæki í fremstu röð, þar sem yfir 1000 starfsmenn af um 64 þjóðernum vinna að því að móta framtíðina á sviði líftæknilyfja og auka aðgengi sjúklinga um allan heim að hágæða lyfjum. Margir af færustu vísindamönnum landsins starfa hjá fyrirtækinu.
Við leyfum fjölbreytileika, forvitni og frumkvæði starfsfólks að njóta sín. Við bjóðum aðlaðandi starfsumhverfi í stöðugri mótun og ögrandi verkefni. Alvotech tryggir að jafnrétti kynjanna til launa og frama nái til allra starfsmanna, hérlendis jafnt sem erlendis. Við viljum laða að okkur færasta fólkið á hverju sviði, án tillits til uppruna eða kyns. Með þessum hætti getum við best þjónað hagsmunum sjúklinga og samstarfsaðilum okkar.
Vertu með okkur í að bæta lífsgæði fólks og auka aðgengi að hagkvæmum líftæknilyfjum.
Sérfræðingur í sjálfbærni - CSRD Principal Specialist
Við leitum af áhugasömum Sérfræðingi í sjálfbærni - Corporate Sustainability Reporting Directive Principal Specialist, til að ganga til liðs við fjármálateymið okkar.
CSRP Principal Specialist gegnir lykilhlutverki í að tryggja að við uppfyllum skyldur okkar og ábyrgð er snýr að sjálfbærni. Umsækjendur þurfa að hafa ríkan skilning og mikla þekkingu á reglum um sjálfbærni, góða greiningarhæfni og starfa þvert á starfsemina á sviði sjálfbærni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tryggja að sjálfbærniskýrslur uppfylli opinberar reglur og standist endurskoðun.
- Umsjón með framkvæmd og skilum á sjálfbærnisskýrslu, sannreyna ESG gögn og tryggja nákvæmni.
- Umsjón með gagnasöfnun, sannprófun gagna og greiningu. Þróa skýrslugerðartól og setja upp verkferla og kerfi.
- Samstarf við hagsmunaaðila; undirbúa kynningar og skýrslur fyrir stjórnendur og endurskoðendur.
- Stefnumótunarvinna og gerð sjálfbærnisstefnu; stöðugt umbótastarf í stefnumótun, skýrslugerð, verkferlum og verkefnum.
- Innri þjálfun á sviði sjálfbærni, fagleg ráðgjöf og þjálfun um staðla, skýrslugerð og bestu starfsvenjur á sviði sjálfbærni.
- Svörun fyrirspurna um sjálfbærni.
- Eftirlit og eftirfylgni með árangri í sjálfbærnismálum, greining á úrbótum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á svipi sjálfbærni, umhverfisfræði, fjármálum eða tengdu sviði.
- 3-5 ára starfsreynsla í sjálfbærnisskýrslugerð, samfélagsábyrgð fyrirtækja eða tengdu sviði.
- Grunnþekking á Evrópureglum (EU Taxonomy, flokkunarreglugerðinni og CSRD, reglugerðinni um upplýsingagjöf á sviði sjálfbærni) er æskileg.
- Sterk greiningarhæfni, verkefnastjórnun og samskiptahæfni.
- Færni í gagnastýringu og skýrslugerð.
- Hæfni til að leiða þverfagleg teymi og stjórna flóknum verkefnum.
- Nákvæmni og heiðarleiki.
- Skipulagshæfni og geta til að sinna mörgum verkefnum og verkefnaskilum.
- Sammvinnufús liðsfélagi sem stuðlar að heildarárangri.
- Lærdómsfús liðsfélagi sem fylgist með þróun á sviði sjálfbærni.
Advertisement published21. October 2024
Application deadline4. November 2024
Language skills
IcelandicVery good
EnglishVery good
Location
Sæmundargata 15-19 15R, 101 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (5)
Similar jobs (8)
Sérfræðingur á fjármálasviði
Arctic Adventures
Forstöðumaður Raunvísindastofnunar HÍ
Háskóli Íslands
Sérfræðingur í Fjárstýringu
Alvotech hf
Aðalbókari Kambar byggingavörur ehf
Kambar Byggingavörur ehf
Sérfræðingur á fjármálasviði
Jarðboranir
Sérhæfðar fjárfestingar
Alfa Framtak
Fjármálastjóri
Alcoa Fjarðaál
Senior Officer, Head of Finance VA 15 2024
EFTA Secretariat