Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.
Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.
Fjármálastjóri
Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum og reyndum leiðtoga til að stýra fjármálasviði fyrirtækisins. Starfið er bæði umfangsmikið og krefjandi og hentar einstaklingi sem býr yfir færni á sviði fjármálastjórnunar og samskipta.
Fjármálastjóri þarf að búa yfir forystuhæfni, samskiptafærni, umbótahugsun og frumkvæði til að ná árangri í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð og umsjón með uppsetningu ársreiknings, mánaðarlegu uppgjöri og áætlanagerð.
- Dagleg stjórnun og rekstur fjármálasviðsins.
- Áætlanagerð og eftirfylgni þeirra.
- Greining og gerð stjórnendaupplýsinga.
- Kostnaðareftirlit, reikningshald og uppgjör.
- Fjármögnun og áhættu- og lausafjárstýring.
- Ýmis umbótaverkefni.
- Aðstoð við samningagerð og önnur fjármálatengd verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur.
- Árangursrík reynsla af sambærilegum störfum.
- Mjög góð þekking á reikningshaldi, uppgjörum og áætlanagerð.
- Reynsla af umbótaverkefnum og sjálfvirknivæðingu.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
- Sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð.
- Mjög góð tölvukunnátta skilyrði sem og góð enskukunnátta.
Advertisement published11. October 2024
Application deadline24. October 2024
Language skills
EnglishVery good
Location
Hraun 158199, 731 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags