Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.
Sérfræðingur í Microsoft Dynamics 365 / CRM
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum forritara með staðgóða kunnáttu í Dynamics 365, sérþekkingu á CRM, til að ganga til liðs við teymi forritara og sérfræðinga innan Arion.
Starfið felur í sér þróun og aðlögun lausna fyrir CRM kerfið, sem leikur lykilhlutverk í þjónustu við viðskiptavini Arion og dótturfélaga. Mikil áhersla er lögð á samþættingu við önnur hugbúnaðarkerfi, yfir vefþjónustur eða aðrar leiðir sem tryggja stöðugt gagnflæði milli kerfa.
Viðkomandi staða er innan hugbúnaðardeildar á upplýsingatæknisviði (UT) Arion.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun, þróun og viðhald lausna í Dynamics 365 CRM umhverfum Arion.
- Þátttaka í greiningu á viðskiptakröfum og samskipti við notendur.
- Hönnun og útfærsla á samþættingum við önnur kerfi, þjónustur og gagnalindir.
- Skjölun á vinnuferlum og tækniumhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða önnur sambærileg menntun.
- Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að greina og útfæra tæknilegar lausnir.
- Reynsla af útfærslu lausna í Dynamics 365, sérstaklega á CRM virkni.
- Góð samskipta- og teymisfærni.
- Frumkvæði og metnaður til að læra og þróast í starfi.
- Reynsla af samþættingu Dynamics 365 við önnur kerfi er æskileg.
- Reynsla af forritun s.s. í C#/.NET og/eða JavaScript telst kostur.
- Þekking á vinnu með gögn er kostur.
Advertisement published30. January 2025
Application deadline13. February 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactiveMicrosoft CRMTeam work
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)
Teymisstjóri hugbúnaðarteymis
Reykjavíkurborg
Deildarstjóri hugbúnaðarteymis áhættustýringar og fjármála
Íslandsbanki
Infrastructure Engineer
CCP Games
Quality Assurance / Hugbúnaðarprófanir
Bókun / Tripadvisor
Hugbúnaðarþróun
Festi
Cloud Architect & DevOps Engineer
APRÓ
Hugbúnaðarsérfræðingar iOS og Android
Arion banki
Front-end Engineer
Bókun / Tripadvisor
Back-end Engineer
Bókun / Tripadvisor
Full Stack / Back-End / AWS DevOp
Parka Lausnir ehf.
Verkefnastjóri í stafrænni þróun
Garðabær
Sérfræðingur í upplýsingaöryggi
Íslandsbanki