Deildarstjóri hugbúnaðarteymis áhættustýringar og fjármála
Íslandsbanki leitar að jákvæðum, drífandi og metnaðarfullum leiðtoga í starf deildarstjóra áhættustýringarlausna og fjármála innan Gagnaþjónustu Íslandsbanka. Deildin er hluti af sviðinu Stafræn þróun og gögn.
Í starfinu felst tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu á nútímalegum gagnainnviðum í einu þekktasta og virtasta fyrirtæki landsins ásamt því að þróa framtíðar lausnir fyrir áhættustýringu og fjármálasvið bankans.
Tilgangur bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka og við trúum því að skynsamleg hagnýting gagna sé ein af grunnstoðum þess að veita viðskiptavinum okkur bestu þjónustuna.
Hlutverkið felur í sér að vera í forystu fyrir hóp reyndra og hæfileikaríkra sérfræðinga, ásamt því að taka þátt í starfi og þróun áhættustýringar og fjármála og vera í forystusveit þegar kemur að gagnalausnum bankans. Deildarstjórinn vinnur í nánu samstarfi við forstöðumann Gagnaþjónustu, framkvæmdastjóra áhættustýringar og aðra hagaðila.
- Fagleg stjórnun deildarinnar, forgangsröðun verkefna, áætlanagerð og framfylgni
- Náið samstarf með hagsmunaðilum við kortlagningu og greiningar á tækifærum til úrbóta
- Þátttaka í hönnun og þróun tæknilausna í samstarfi við forstöðumann Gagnaþjónustu
- Jákvætt hugarfar, framúrskarandi samskiptahæfni og lausnamiðuð hugsun
- Framsækni, metnaður og drifkraftur
- Háskólapróf í hugbúnaðarverkfræði, tölvunarfræði eða skyldum greinum
- Reynsla af hugbúnaðargerð á fjármálamarkaði
- Reynsla af stjórnun hugbúnaðarteyma
- Reynsla og þekking af fjármálastarfsemi og / eða áhættustýringu er mikill kostur