Íslandsbanki
Íslandsbanki
Íslandsbanki

Sérfræðingur í Áhættustýringu

Íslandsbanki leitar að sérfræðingi í Áhættustýringu

Viltu taka þátt í að móta og efla Áhættustýringu í einu stærsta fjármálafyrirtæki landsins? Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi til að ganga til liðs við deildina Rekstraráhætta og viðnámsþróttur innan Áhættustýringar Íslandsbanka.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði áhættustýringar, sér í lagi sem snúa að eftirliti með rekstraráhættu. Viðkomandi fær tækifæri til þess taka þátt í þróun umgjarðar bankans um áhættustýringu og kemur að skýrslugjöf til stjórnenda, stjórnar og eftirlitsaðila. Í starfinu felst tækifæri til að taka þátt í mikilvægum verkefnum þvert á bankann.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirfylgni, þróun, viðhald og innleiðing rekstrarsamfellumgjarðar og gæðamála
  • Eftirlit með áhættumötum, atvikaskráningu og úttektaferlum
  • Þróa og móta áhættumiðað og skilvirkt eftirlit með rekstraráhættu
  • Innleiða og efla góða áhættumenningu innan bankans
  • Fræðsla og ráðgjöf til starfsfólks og hagsmunaaðila
  • Samskipti við eftirlitsaðila
  • Sérhæfð greiningarverkefni og verkefnastýring
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af áhættustýringu, innra eftirliti, öryggismálum eða gæðaeftirliti
  • Þekking á rekstraráhættu og fjármálamarkaði er kostur
  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi
  • Frumkvæði, öguð vinnubrögð og framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Tæknileg færni og hæfni til að miðla efni í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku
Advertisement published2. March 2026
Application deadline15. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DeterminationPathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Content writingPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags