
Bakkinn vöruhótel
Bakkinn vöruhótel sérhæfir sig í vöruhýsingu, pökkun, vörumerkingu, afgreiðslu og dreifingu á vörum fyrir viðskiptavini sem kjósa að úthýsa sinni vöruhúsastarfsemi að einhverju eða öllu leyti.

Sérfræðingur á upplýsingtæknisviði – Vöruhús Bakkans
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi til liðs við okkur á upplýsingatæknisviði vöruhússins. Um er að ræða nýtt starf vegna umsvifa vöruhússins, fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem þú kemur að daglegum rekstri, vinnur með upplýsingakerfi, gagnaúrvinnslu og tæknibúnað.
Í starfinu færð þú tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif, vinna náið með rekstrarteymi vöruhússins og upplýsingatæknisviði, og taka þátt í að bæta ferla og finna snjallar lausnir í hröðu og lifandi umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð við uppsetningu, prófanir og innleiðingu breytinga í vöruhúsakerfum
- Daglegur rekstur, umsýsla og notendastuðningur við Manhattan Scale (WMS)Gagnaúrvinnsla, greining og skýrslugerð (t.d. rekstrargögn, afköst, lagerhreyfingar)
- Þátttaka í þróun og viðhaldi heimasíðu og/eða innri veflausna eftir þörfum
- Viðhald og bilanagreining á tölvubúnaði í vöruhúsi, m.a.:
- Handtölvur / skannar
- Merkimiðaprentarar
- Vinnustöðvar og tengdur jaðarbúnaður
- Samskipti við birgja hug- og vélbúnaðar eftir þörfum
- Þátttaka í umbótaverkefnum og sjálfvirknivæðingu ferla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla á sviði upplýsingatækni, tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegu sviði
- Reynsla af vöruhúsakerfum er kostur, sérstaklega Manhattan Scale
- Góð færni í gagnavinnslu og greiningu (t.d. Excel, Power BI, SQL eða sambærilegt)
- Grunnþekking á vefumsjón / veflausnum er kostur
- Þekking á tölvu- og netbúnaði, bilanagreiningu og almennu IT-viðhaldi
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Skipulagður, sjálfstæður og lausnamiðaður vinnubrögð
Fríðindi í starfi
- Hluti af Festi samstæðunni með tilheyrandi afsláttum hjá Krónunni, Elko, N1 og Lyfju
- Aðgengi að velferðarpakka Bakkans
- Íþróttastyrk
- Niðurgreiðslu af morgun- og hádegismat
Advertisement published3. April 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Skarfagarðar 2, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
Data analysisDesigning proceduresSoftware testingAutomatic testingIT project management
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

QA Automation Engineer – forritari á upplýsingatæknisviði
Arion banki

Graphics Programmer
CCP Games

Viltu starfa í upplýsingatækni?
OK

Full stack forritari
Helix Health

Framendaforritari
Helix Health

Ábyrgðaraðili stjórnkerfa í virkjunum ON
Orka náttúrunnar

Skjalastjóri
Tækniskólinn

Safnstjóri skólasafns – Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur í Power Platform og stafrænni umbreytingu
Advania

Hugbúnaðarsérfræðingur
Ljósleiðarinn

Quality Assurance Lead
Tern Systems

Fulltrúi í teymi félags- og kjaramála
Kennarasamband Íslands