

Skjalastjóri
Tækniskólinn leitar að einstaklingi með góða þekkingu og reynslu af skjalastjórnun til að leiða umsjón og þróun upplýsinga- og skjalastjórnar hjá Tækniskólanum.
Skjalastjóri starfar í náinni samvinnu við stjórnendur og starfsfólk þvert á starfssvið stofnunarinnar. Í starfinu felst vinna að innleiðingu nýrra lausna og verklags ásamt handleiðslu samstarfsfólks með skilvirkni að leiðarljósi. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf þar sem reynir á öguð vinnubrögð, samskiptahæfni og fagmennsku.
-
Ábyrgð á daglegri umsjón rafræns skjalastjórnunarkerfis Tækniskólans
-
Ábyrgð á skjalamálum Tækniskólans, mótun verklags og þróun upplýsinga- og skjalastefnu til framtíðar
-
Leiða þróun og umbætur á sviði skjalamála
-
Ráðgjöf, stuðningur og fræðsla til starfsfólks um kerfisnotkun, skjalavistun og bætt verkag
-
Frágangur og skil á gögnum Tækniskólans til Þjóðskjalasafns Íslands
-
Stuðla að bestu starfsvenjum í skjalastjórnun og eiga frumkvæði í þróun og innleiðingu nýjunga á verklagi við stafræna þróun upplýsinga- og skjalamála
-
Sinna hlutverki persónuverndarfulltrúa Tækniskólans; sinna innra eftirliti, upplýsa og ráðleggja vegna persónuverndarlöggjafarinnar, veita ráðgjöf við framkvæmd mats á áhrifum á persónuvernd og vera tengiliður við einstaklinga og Persónuvernd
-
Þátttaka í starfrækslu gæðakerfis skólans og umbótum gæðakerfisins
-
Framkvæmd innri úttekta og úrvinnsla þeirra
-
Háskólapróf (BA/BS að lágmarki) sem nýtist í starfi er skilyrði, framhaldsnám í upplýsingafræði er kostur
-
Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfum, gæðastjórnun og innri úttektum
-
Þekking og reynsla af stafrænu umbreytingarferli og þróun í upplýsinga- og skjalamálum
-
Þekking og reynsla af skjalastjórnun innan opinberrar stjórnsýslu og meðferð stjórnsýslumála
-
Þekking á lögum um persónuvernd- og vinnslu persónuupplýsinga
-
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
-
Mjög góð almenn tölvukunnátta og þekking á Microsoft 365 umhverfinu
- Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum ásamt færni til að leiða umbætur
-
Góð samskiptahæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
- Hreint sakavottorð
Icelandic
English



