
Terra hf.
Terra er líflegur og fjölbreyttur vinnustaður. Hjá félaginu starfa um 260 einstaklingar á starfsstöðvum á nokkrum stöðum á landinu. Alla daga vinnum við af dugnaði og eljusemi að því að gera góða hluti fyrir umhverfið.
Við veitum fjölbreytta þjónustu á sviði umhverfismála, einkum á sviði úrgangsstjórnunar og endurvinnslu. Frá 1984 hefur Terra lagt áherslu á að þjóna fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt þar sem tekið er fullt tillit til aðstæðna á hverjum stað og mismunandi þarfa viðskiptavina. Lögð er áhersla á að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið.
Við leggjum mikið upp úr fjölskylduvænu vinnuumhverfi, sterkri liðsheild og jákvæðum og góðum starfsanda. Við erum með öflugt starfsmannafélag sem heldur fjölbreytta viðburði yfir allt árið.

Sérfræðingur á fjármálasviði
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum sérfræðingi á fjármálasvið. Ef þú hefur auga fyrir smáatriðum og nýtur þess að vinna í krefjandi og skemmtilegu umhverfi, þá hvetjum við þig að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Færsla og afstemming á bókhaldi
- Regluleg afstemming og samskipti við lánardrottna
- Aðkoma að mánaðarlegum uppgjörum
- Skráning og viðhald á eignaskrá félagsins
- Þátttaka í öðrum fjölbreyttum verkefnum á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af bókhaldsstörfum
- Menntun sem nýtist í starfi t.d. viðskiptafræði og/eða viðurkenndur bókari
- Þekking á bókhaldskerfum – Business Central er kostur
- Góðir samskiptahæfileikar
- Jákvæðni og þjónustulund
- Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
- Góð Excel og almenn tölvukunnátta
Advertisement published26. June 2025
Application deadline6. July 2025
Language skills

Required

Required
Location
Berghella 1, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
ReconciliationTech-savvyQuick learnerProactiveTellerHuman relationsAmbitionIndependencePlanningTeam workWrite upCustomer service
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Sérfræðingur á fjármálasviði
First Water

Sérfræðingur á skrifstofu framkvæmdastjórnar
Amaroq Minerals Ltd

Rekstrargreining og vörustjórnun (Operations & Purchasing Controller)
Nespresso á Íslandi

Sérfræðingur í birgðastýringu
Krónan

Gjaldkeri
Birta lífeyrissjóður

Sérfræðingur á vörusviði
Lyfja

Bókari
Heimar

Endurskoðun og uppgjör
ODT

Aðalbókari
Rauði krossinn á Íslandi

Reyndur bókari hjá rótgrónu fyrirtæki
Hagvangur

Sales & Marketing Lead
Alda

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT Bókað ehf á Suðurlandi
ECIT