Nespresso á Íslandi
Nespresso á Íslandi
Nespresso á Íslandi

Rekstrargreining og vörustjórnun (Operations & Purchasing Controller)

Nespresso á Íslandi leitar að framsýnum, gagnadrifnum og lausnamiðuðum einstaklingi sem brennur fyrir því að umbreyta gögnum í skýra innsýn og styðja við rekstrarákvarðanir.

Í þessu hlutverki starfar viðkomandi þvert á teymi, bæði á Íslandi og í Finnlandi, og er lykilaðili í þróun og framsetningu á upplýsingum sem styðja við rekstur, vöruflæði og stefnumótun.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir gagna drifinn einstakling sem vill vaxa með alþjóðlegu vörumerki, stuðla að rekstrarlegum framförum og þróa gögn og ferla sem skipta máli.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gagnavinnsla og greining með skýrum rekstrartilgangi
  • Þróun og viðhald á gagnagrunnum
  • Myndræn framsetning og skýr túlkun gagna fyrir stjórnendur og samstarfsfólk
  • Sjálfvirknivæðing stjórnendaskýrslna og rekstrarupplýsinga
  • Umsjón með innkaupum og vöruflæði
  • Þátttaka í þróun ferla og gagnaflæðis í samstarfi við UT teymi
  • Önnur fjölbreytt verkefni í skráningu, greiningu og rekstri
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á sviði innkaupa er mikill kostur
  • Grunnþekking á Business Central er mikill kostur
  • Brennandi áhuga á gagnagreiningum
  • Geta til að sjá heildarmyndina og smáatriðin í senn
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð nálgun
  • Góð samskiptahæfni, fagmennska og heiðarleiki
Við bjóðum upp á
  • Frábæra vinnuaðstöðu miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu
  • Möguleika á að vinna með vörumerki sem leggur áherslu á sjálfbærni og gæði
  • Tækifæri til að móta starf og áhrif þess á fyrirtækið
  • Nýjustu tæknilausnir og þróunarverkefni innan gagna og rekstrar
  • Þverfaglegt og mannlegt starfsumhverfi þar sem frumkvæði fær að njóta sín

Upphaf starfs: Sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi - mikill kostur ef umsækjandi getur hafið störf í byrjun ágúst.

Sendu inn ferilskrá og stutt kynningarbréf ef þú vilt vera lykilþáttakandi í smáu en samhentu teymi - hlökkum til að heyra frá þér.

Nánari upplýsingar veitir Benóný Dagur Brynjarsson (CIO), [email protected]

Advertisement published24. June 2025
Application deadline2. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Skútuvogur 11A, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Report writingPathCreated with Sketch.SQL
Professions
Job Tags