Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Sérfræðingur á fjármálasviði

Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings á fjármálasviðið. Leitað er eftir drífandi starfsmanni sem sýnir frumkvæði að nýjungum í upplýsingakerfum. Viðkomandi ber ábyrgð á bókhaldi HVE og stýrir bókhaldsvinnu og uppgjörum.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands samanstendur af þremur rekstrarsviðum, heilsugæslu- sjúkra- og hjúkrunarsvið á átta starfsstöðum. Akranesi, Borgarnesi, Búðardal, Grundarfirði, Hólmavík, Hvammstanga, Ólafsvík og Stykkishólmi. Á upptökusvæðinu búa um 19 þúsund manns og HVE veitir heilsugæsluþjónustu á öllum starfsstöðvum sínum, á Akranesi er sjúkrahús og í Búðardal, Hólmavík, Hvammstanga og Stykkishólmi eru hjúkrunarheimili.

Gert er ráð fyrir að aðalstarfsstöð viðkomandi sé á Akranesi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg umsjón bókhalds og ber ábyrgð á að skipulag bókhalds og vinnubrögð séu í samræmi við lög og reikningsskil ríkisins

  • Yfirumsjón með skráningu reikninga og samþykktum þeirra

  • Yfirumsjón með innheimtu

  • Umsjón með afstemmingum banka, viðskiptareikninga og virðisaukaskatts

  • Samskipti við Fjársýslu ríkisins og aðra aðila vegna uppgjörsmála og fleira

  • Uppgjörs og greiningarvinna

  • Aðkoma að áætlunargerð

  • Ráðgjöf og stuðningur við notendur fjárhagskerfa

  • Innleiðing ferla og sjálfvirkni

  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, háskólamenntun er kostur

  • Haldgóð reynsla af bókhaldsstörfum og góð bókhaldsþekking er skilyrði

  • Þekking á Orra, fjárhagskerfi stofnunarinnar er kostur

  • Þekking á Navision innheimtu og sölukerfi er kostur

  • Góð tölvufærni, sérstaklega í excel og bókhaldskerfum er skilyrði

  • Nákvæmni, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar

  • Traust og góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Jákvæðni og frumkvæði

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku

Advertisement published3. June 2025
Application deadline18. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Merkigerði 9, 300 Akranes
Type of work
Professions
Job Tags