
Reyndur bókari
Við leitum að metnaðarfullum og reynslumiklum einstaklingi til að ganga til liðs við fjármála teymið okkar. Sem bókari munt þú bera ábyrgð á fjölbreyttum verkefnum sem tryggja nákvæmni og áreiðanleika í fjárhagsgögnum okkar
Helstu verkefni
-
Umsjón með öllum þáttum viðskiptamanna- og lánadrottnabókhalds
-
Undirbúningur og bókun færslna.
-
Almenn bókhaldsvinna og regluleg afstemming bankareikninga.
-
Undirbúningur og framkvæmd greiðslna.
-
Aðstoð við gerð fjárhagsáætlana,og lokun mánaðar- og ársloka ásamt viðeigandi afstemmingum.
-
Eftirlit með, og úrbætur á bókhaldsfrávikum.
-
Tryggja fullt samræmi við íslensk skattalög, skil á virðisaukaskatti og veita aðstoð við endurskoðun.
-
Viðhalda nákvæmum fjárhagsgögnum og styðja við öflugt innra eftirlit.
-
Sinna öðrum tilfallandi verkefnum eftir þörfum hverju sinni sem og að taka virkan þátt í umbótaverkefnum og hagræðingu ferla innan fjármáladeildarinnar.
Hæfniskröfur og reynsla
-
Löggiltur bókari eða sambærileg menntun og góð reynsla í reikningshaldi.
-
Færni í bókhaldskerfum, helst Business Central, og góð kunnátta í Excel.
-
Góð þekking á meginreglum reikningshalds og fjárhagsuppgjörsstaðla.
-
Frábær greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og skipulagshæfni.
-
Mjög góð nákvæmni og athygli á smáatriðum.
-
Mjög góð enskufærni.
-
Hæfni til að sinna mörgum verkefnum á sama tíma.
-
Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi.
Umsóknir um þetta starf, ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, mega vera á íslensku eða ensku
Við höfum áhuga á hæfileikaríku fólki sem deilir ástríðu okkar fyrir að bæta líf fólks. Nox Medical fagnar fjölbreytileika. Við teljum að grunnurinn að kraftmikilli og frumkvöðla starfsemi felist í sanngjörnu og inngildandi vinnuumhverfi. Menning fyrirtækisins okkar byggist á því að leiða saman ólíkar hugmyndir og einstaklinga til að hvetja til nýsköpunar og samvinnu.












