Sælkerabúðin
Sælkerabúðin
Sælkerabúðin

Sælkerabúðin

Sælkerabúðin óskar eftir metnaðarfullum og matreiðsluáhugafullum einstaklingi í framtíðarstarf í verslun sinni að Bitruhálsi 2.
Við leitum að aðila sem hefur brennandi áhuga á matreiðslu og tilbúinn er að sinna fjölbreyttum verkefnum tengdum bæði kjötiðnaði og öðrum matreiðslustörfum.

Í boði er fullt starf í líflegu og hvetjandi starfsumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á fagmennsku, þjónustugæði og starfsþróun. Starfið felur m.a. í sér:

  • Sölu og þjónustu við viðskiptavini

  • Pöntun og móttöku á aðföngum

  • Framsetningu og umsjón með vörum

  • Ýmis störf tengd matreiðslu og kjötiðnaði

  • Almenn verslunarstörf

Við leitum að einstaklingi sem býr yfir eftirfarandi eiginleikum:

  • Brennandi áhugi á matreiðslu og matvælaiðnaði

  • Jákvætt, glaðlegt og þjónustulundað viðmót

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni

  • Nákvæmni og ábyrgðarkennd í starfi

  • Góð kunnátta í íslensku, bæði töluðu og rituðu máli

  • Reynsla af sölu- og þjónustustörfum er kostur

Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri.
Við hvetjum öll sem hafa áhuga á mat og góðri þjónustu til að sækja um.

Advertisement published14. April 2025
Application deadline14. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Bitruháls 2, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags