Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Rytmískur söngkennari - Tónlistarskóli Hafnarfjarðar

Tónlistarskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir rytmískum söngkennara, um hlutastarf (35% starf) er að ræða. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026.

Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti.

Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar eru um 600 nemendur og 56 kennarar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Söngkennsla í rytmískrum söng samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskólanna
  • Önnur verefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Framhaldsnám í rytmískum söng
  • Reynslu að starfa með nemendum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi.
  • Góð íslenskukunnátta.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Stephensen, skólastjóri, í síma 664-5882 og í gegnum tölvupóst [email protected] og Stefán Ómar Jakobsson, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5884 og í gegnum tölvupóst [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 12. júní 2026

Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FT/FÍH.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Advertisement published4. June 2026
Application deadline12. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Strandgata 51, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags