

Reykjanesbær - Hjólapóstur
Pósturinn leitar að kraftmiklum og ábyrgðarfullum einstaklingi til að sinna starfi hjólapósts í Reykjanesbæ.
Í starfi hjólapósts felst að koma sendingum til skila á rafhjóli sem eru þægileg, umhverfisvæn og skemmtileg.
Starfshlutfall er 100% og vinnutíminn er frá klukkan 08:00 til 16:05, alla virka daga. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
- Sterk ábyrgðartilfinning
- Lausnamiðuð hugsun og jákvætt hugarfar
- Íslensku- og enskukunnátta
- Bílpróf er skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 9. janúar 2026.Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Björg Guðmundsdóttir, rekstrarstjóri, í tölvupósti - [email protected].
Vinsamlegast athugið að aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum umsóknarvefinn en ekki í tölvupósti.
Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.
Icelandic
English










