KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi

Reikningsskil og endurskoðun - Stykkishólmur

KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 330 einstaklingar á 15 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.

Vilt þú starfa við reikningsskil og endurskoðun í Hólminum fagra?

Við leitum nú að drífandi og talnaglöggum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna við að veita viðskiptavinum KPMG þjónustu á sviði reikningsskila, skatta og endurskoðunar ársreikninga með starfsstöð á skrifstofu KPMG á Stykkishólmi.

Ef að þú ert endurskoðandi eða hefur yfirgripsmikla reynslu á sviði reikningsskila og/eða endurskoðunar þá viljum við endilega heyra frá þér.

Dæmi um verkefni og ábyrgð:

Þjónusta við fyrirtæki og opinbera aðila á sviði;

  • Endurskoðunar og annarrar staðfestingarvinnu, s.s. á sviði sjálfbærni.
  • Reikningsskila og ársreikningsgerðar.
  • Skattskila og tengdra mála.

Annað;

  • Ýmis ráðgjafartengd verkefni.
  • Verkefni tengd gæðamálum og faglegu starfi KPMG.
  • Aðrar tilfallandi greiningar og verkefni.

Hæfniskröfur:

  • Brennandi áhugi á viðskiptum og innsýn inn í starfsemi fyrirtækja og ólíkra atvinnugreina.
  • Meistaranám í endurskoðun og reikningsskilum (MAcc) kostur.
  • A.m.k 3 ára starfsreynsla af sambærilegu starfi nauðsynleg.
  • Góð tölvufærni, greiningarhæfni og enskukunnátta.
  • Frumkvæði, vandvirkni og öguð vinnubrögð.
  • Hæfni til að vinna í teymi sem og sjálfstætt auk ríkrar þjónustulundar.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt fólk til að sækja um óháð kyni.

Að vinna hjá KPMG

Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum hjá KPMG á Íslandi og erlendis.
  • Möguleikar á að þróast í starfi.
  • Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
  • Sveigjanleiki í starfi.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á ráðningarsíðu KPMG (hlekkur hér til hliðar til að sækja um).

Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum á hsteinthorsdottir@kpmg.is. og Haraldur Örn Reynisson endurskoðandi í hreynisson@kpmg.is

Advertisement published4. November 2024
Application deadline1. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Aðalgata 5, 340 Stykkishólmur
Type of work
Professions
Job Tags