Nortek
Nortek

Rafvirki / Rafeindavirki til starfa í Tæknideild

Tækifæri fyrir metnaðarfullan rafvirkja/rafeindavirkja

Nortek leitar að drífandi einstaklingi til starfa í tækniteymi fyrirtækisins við uppsetningu, þjónustu og viðhald á fjölbreyttum öryggis- og eftirlitslausnum.

Í boði er krefjandi og fjölbreytt starf í skemmtilegu vinnuumhverfi þar sem þú færð að vinna með nýjustu tækni, þróast faglega og leggja þitt af mörkum til að gera samfélagið öruggara. Starfið felur í sér samskipti við viðskiptavini og náið samstarf við samhentan hóp tæknimanna.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Býr yfir reynslu af sambærilegum störfum
  • Er lipur í mannlegum samskiptum
  • Sýnir frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hefur ríka þjónustulund og tekur ábyrgð á verkefnum

Hjá okkur færð þú tækifæri til að þróast og vaxa í starfi. Við bjóðum upp á reglulega fræðslu og þjálfun í nýjustu lausnum þannig að þú sért alltaf á toppnum í faginu.

Við leggjum mikla áherslu á jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi þar sem gott samstarf og húmor er í hávegum haft, og tryggjum þér faglegan stuðning svo þú getir tekist á við spennandi og krefjandi verkefni.

Almennur vinnutími er frá kl. 8–16 virka daga og 8–15 á föstudögum. Starfsfólk hefur jafnframt aðgang að fyrirtækjabíl til að komast í og úr vinnu, auk búnaðar og tækja í hæsta gæðaflokki sem gera starfið bæði skilvirkt og ánægjulegt.

Umsækjendur þurfa að geta framvísað hreinu sakavottorði. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Setja upp, prófa og koma í gagnið nýjustu öryggislausnir sem bæta öryggi viðskiptavina okkar – svo sem aðgangsstýringar, innbrotakerfi, brunaviðvörunarkerfi og myndavélakerfi.
  • Þjóna og viðhalda búnaði til að tryggja örugga og áreiðanlega virkni.
  • Gerina bilanir og leita lausna fljótt og faglega.
  • Samstarf og samvinna með öðrum sérfræðingum innan fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í rafeindavirkjun, rafvirkjun eða sambærileg menntun
  • Sjálfstæði vinnubrögð
  • Almenn tækniþekking og áhugi, nauðsynlegt.
  • Færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Lausnamiðað hugarfar
  • Góð tölvukunnátta og færni í uppsetningu forrita
Advertisement published29. September 2025
Application deadline10. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Fossaleynir 16, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Building skillsPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Electronic technicsPathCreated with Sketch.ElectricianPathCreated with Sketch.ElectricianPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Industrial mechanicsPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags