Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Ráðgjafar á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með börnum og unglingum? Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar stöður ráðgjafa í búsetukjörnum fyrir börn og unglinga með fjölþættar stuðningsþarfir. Markmið búsetukjarnanna er að skapa þeim sem þar búa öruggt og stöðugt heimili þar sem þau fá einstaklingsmiðaðan stuðning sem stuðlar að velferð þeirra, þroska og farsæld. Starfið heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsbundinn stuðningur við börn og unglinga í daglegu lífi undir leiðsögn deildarstjóra og forstöðumanns.
  • Vinna að tómstundastarfi, starfsþjálfun og stuðningi í námi skjólstæðinga.
  • Samskipti við forsjáraðila, vistunaraðila og samstarfsaðila.
  • Skráning dagnóta um framgang vistunar, stöðu og líðan og skráning atvika samkvæmt verklagsreglum.
  • Vinna eftir verklagsreglum og þeim gagnreyndu aðferðum sem unnið er eftir á heimilinu.
  • Umönnun, stuðningur við athafnir daglegs lífs og að tryggja öryggi skjólstæðinga.
  • Almenn heimilisstörf.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi.
  • Áhugi og/eða reynsla af starfi með börnum og unglingum með fjölþættar stuðningsþarfir.
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Sveigjanleiki og þjónustulund.
  • Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
  • Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli, enskukunnátta æskileg.
  • Gild ökuréttindi.
Advertisement published2. October 2026
Application deadline12. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Borgartún 21*, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags