

Verkefnastjóri á meðferðarheimilinu Esju
Vilt þú taka þátt í gefandi og krefjandi starfi með unglingum?
Barna- og fjölskyldustofa óskar eftir að ráða verkefnastjóra skóla og atvinnumála á meðferðarheimilinu Esju, um er að ræða fastráðningu í 100% starf í dagvinnu. Starfið heyrir undir forstöðumann Esju.
Starfsstöð Esju er tímabundið staðsett á Vogi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
- Hafa umsjón með og skipuleggja skóla og atvinnuþátttöku skjólstæðinga.
-
Vera tengiliður meðferðarheimilisins við heimaskóla skjólstæðinga og vinnustaði.
-
Einstaklingsbundinn stuðningur við unglinga í samvinnu við deildarstjóra, sálfræðinga og forstöðumann.
-
Meðferðarvinna samkvæmt meðferðaráætlun skjólstæðinga.
-
Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
-
Vinna eftir verklagsreglum meðferðarheimilisins.
-
Önnur verkefni í samráði við yfirmenn.
-
BA/BS próf sem nýtist í starfi að mati forstöðumanns.
-
Reynsla og þekking af gagnreyndum aðferðum í meðferðarvinnu með unglingum.
-
Góð íslenskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
-
Góð færni í mannlegum samskiptum.
-
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.
-
Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Gild ökuréttindi.
-
Einnig er lögð áhersla á aðra persónulega eiginleika, svo sem sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og áhuga á að starfa með ungmennum.
Icelandic







