
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa er leiðandi í þjónustu í þágu farsældar barna. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Hellu og í Eyjafjarðarsveit. Stofnunin heyrir undir Barna- og menntamálaráðuneytið.
Meginverkefni Barna- og fjölskyldustofu er að veita fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu á sviði barnaverndar og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Stofnunin leggur mat á væntanlega fósturforeldra, heldur fósturforeldranámskeið ásamt því að veita fósturforeldrum ráðgjöf og stuðning.
Veitir börnum, innan barnaverndar, þjónustu sem lýtur að sérhæfðum meðferðarúrræðum (Stuðlar, Lækjarbakki og Bjargey), fjölkerfameðferð MST og starfsemi Barnahúss.
Auk þess leggur stofan áherslu á fræðilegar rannsóknir og stuðning við þróunar- og rannsóknarstarf ásamt uppsetningu og innleiðingu á samræmdum gagnagrunni í barnavernd á landsvísu.
Meginmarkmið Barna- og fjölskyldustofu:
• Veita framúrskarandi þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á gæðaþróun og stafrænar lausnir.
• Vera í fararbroddi í fræðslu og leiðsögn við þá sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.
• Veita fjölbreytt og sérhæfð úrræði fyrir börn byggð á gagnreyndum aðferðum.
• Stofnunin búi yfir fjölbreyttum starfshóp sem er faglegur og kraftmikill.

Hópstjórar á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með börnum og unglingum? Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar stöður hópstjóra í búsetukjörnum fyrir börn og unglinga með fjölþættar stuðningsþarfir. Markmið búsetukjarnanna er að skapa þeim sem þar búa öruggt og stöðugt heimili þar sem þau fá einstaklingsmiðaðan stuðning sem stuðlar að velferð þeirra, þroska og farsæld. Starfið heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita börnum og unglingum einstaklingsbundinn stuðning í daglegu lífi og styðja þau í námi, vinnu, tómstundum og athöfnum daglegs lífs til að efla færni þeirra og sjálfstæði.
- Ábyrgð á vaktstjórn á heimilinu utan hefðbundins dagvinnutíma eða í fjarveru yfirmanns.
- Samskipti við forsjáraðila, vistunaraðila og samstarfsaðila.
- Vinna eftir verklagsreglum heimilisins og þeim gagnreyndum aðferðum sem unnið er eftir á heimilinu.
- Hafa umsjón með skráningu dagnóta og atvika samkvæmt verklagsreglum.
- Tryggja öryggi skjólstæðinga.
- Almenn heimilisstörf.
- Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- BA/BS próf sem nýtist í starfi er kostur
- Áhugi og/eða reynsla af starfi með börnum og unglingum með fjölþættar stuðningsþarfir.
- Reynsla og/eða þekking af gagnreyndum aðferðum í vinnu með börnum með fjölþættar stuðningsþarfir.
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Sveigjanleiki og þjónustulund.
- Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
- Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli, enskukunnátta æskileg.
- Gild ökuréttindi.
Advertisement published2. October 2026
Application deadline12. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Borgartún 21*, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (3)

