

Óska eftir aðstoðarkonu í hlutastarf
Ég er 70 ára gömul kona búsett í Hafnarfirði að leita mér að aðstoðarkonu í hlutastarf. Mér finnst gaman að prjóna og spjalla.
Starfið felst í að aðstoða mig við öll þau verkefni sem ég tek mér fyrir hendur. Fara í búðina, ræktina, heimilisverk og fleira.
Vinnutími
Alla föstudaga frá kl 11:00-17:00. Einnig vantar í afleysingar í sumarfríum og ef upp koma forföll.
Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur
Ekki er gerð krafa um starfsreynslu eða sérstaka menntun, en lögð er áhersla á að umsækjendur temji sér stundvísi, jákvæðni, heiðarleika og virðingu í samskiptum. Bílpróf, reykleysi og hreint sakavottorð eru skilyrði.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, en hægt er að lesa nánar um hugmyndarfræðina um sjálfstætt líf og NPA á vefsíðunni: https://www.npa.is/
Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.
Icelandic
English





















