OK
OK
OK

OK leitar að starfsmanni á NOC vaktborð

OK leitar að áhugasömum og metnaðarfullum einstakling til að sinna starfi NOC vaktmanns á miðlægri vöktunarmiðstöð félagsins. Um er að ræða fullt starf á dagtíma með mætingu á starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu. Vinnutími er að jafnaði frá kl 8:00-16:00 alla virka daga en möguleiki á tilfallandi vöktum utan dagtíma vegna afleysinga annarra í teyminu.

Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.

Hvað er NOC ?

NOC (Network Operations Center) er okkar 24x7 vöktunarþjónusta.

Vöktunarþjónusta felur í sér vöktun á tölvukerfum allan sólarhringinn, alla daga ársins og býr að öflugum hópi sérfræðinga, vöktunarkerfum og ferlum sem tryggja þann uppitíma sem krafist er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagvaktir á NOC (08:00-16:00)

  • Skipulag og umsjón með vaktaplani teymisins

  • Dagleg umsýsla NOC teymis og samskipti við lykilaðila innan OK

  • Umsýsla kerfa, útstöðva og annarra jaðartækja

  • Úrvinnsla verkbeiðna

  • Þjónusta við notendur

  • Vinna með forstöðumanni í að sinna stöðugum umbótum á ferlum og verklagi

  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám í kerfisstjórnun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
  • Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Geta til að vinna í hóp og vera hluti af teymi
  • Góð færni í íslensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
  • Góð færni í ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
Advertisement published30. March 2026
Application deadline6. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags