

Öryggissérfræðingur – ISO 45001 og framkvæmdaverkefni
Vegna aukinna verkefna leitum við að öflugu og skemmtilegu fólki til að slást í hópinn hjá okkur. Ef þú hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum og að ná árangri í verkefnum – þá gætum við verið að leita að þér.
Við leitum að öryggissérfræðingi sem hefur áhuga á að efla vinnuvernd og styðja fyrirtæki við að byggja upp sterka öryggismenningu.
· Innleiðing og þróun öryggisstjórnkerfa samkvæmt ISO 45001
· Áhættumat og skilgreining áhættuþátta
· Eftirlit á verkstað og í framkvæmdum
· Ráðgjöf til fyrirtækja um vinnuvernd og öryggismál
· Stuðningur við innleiðingu öryggismenningar
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi
· Reynsla af áhættumati og öryggiseftirliti í framkvæmdum
· Reynsla af vinnuvernd og öryggisstjórnun
· Þekking á ISO 45001
· Skipulagshæfni og afar góð samskiptafærni
English
Icelandic


