
Garðheimar
Garðheimar er fjölskyldurekið fyrirtæki með áherslu á allt sem tengist grænum lífsstíl, plöntum, blómum, skreytingum, gjafavöru, gæludýravörum og gæða garðyrkjutækjum og tólum.
Stefna fyrirtækisins er að reka náttúruvænt fyrirtæki þar sem fólk getur eytt tímanum og notið þess andrúmslofts sem skapast innan um fjölskrúðugan gróður, sem og að veita góða þjónustu byggða á þekkingu og reynslu.
Garðheimar eiga rætur til 30. september 1991 þegar hjónin Gísli H. Sigurðsson og Jónína S. Lárusdóttir stofnuðu fyrirtækið Gróðurvörur sem var til húsa á Smiðjuvegi 5.

Öflugur fulltrúi í innkaupadeild
Garðheimar leita að metnaðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi til að ganga til liðs við innkaupadeild fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem reynir á skipulagshæfni, nákvæmni og góða færni í mannlegum samskiptum. Viðkomandi mun einnig gegna mikilvægu hlutverki í innleiðingu nýs birgðakerfis og því leitum við að aðila með haldbæra tækniþekkingu, Excel kunnáttu og góðan skilning á viðskiptakerfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með innkaupum og innflutningi frá erlendum birgjum.
- Innkaup á vörum frá innlendum birgjum ásamt vörumóttöku innlendra vara.
- Uppsetning og utanumhald innkaupapantana í viðskiptakerfinu Opus.
- Samskipti við flutningsaðila og tollskýrslugerð.
- Verðútreikningar og greiningar eftir þörfum.
- Eftirfylgni með vörum inn í vefverslun í nánu samstarfi við vefstjóra.
- Þátttaka í innleiðingu nýs birgðakerfis.
- Önnur tilfallandi verkefni sem falin eru af innkaupastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Rík skipulagshæfni, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð.
- Góð almenn tölvukunnátta, sterk greiningarhæfni og gott talnalæsi.
- Mikil hæfni á helstu Microsoft forrit, sér í lagi Excel.
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
- Jákvæðni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
- Þekking á bókhaldi og bókhaldskerfum er æskileg, þekking á Business Central mikill kostur.
- Þekking eða reynsla af tollamálum er mikill kostur.
Advertisement published30. April 2026
Application deadline10. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Álfabakki 6
Type of work
Skills
ReliabilityDriveProfessionalismProactiveClean criminal recordHuman relationsAmbitionPhone communicationEmail communicationConscientiousIndependencePlanningNeatnessMeticulousnessWorking under pressure
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Rådgiver for nordisk energisamarbejde
Signatur AS

Launafulltrúi
Securitas

Gjaldkeri |Skrifstofuumsjón
Íslensk fjárfesting

Vörustjóri heilbrigðisvöru
Heilsa

Sumarstarf á skrifstofu á Húsavík
Eimskip

Fjölbreytt skrifstofustarf
LOGOS lögmannsþjónusta

Sérfræðingur í deild leyfisveitinga og ökunáms
Samgöngustofa

Verkefnastjóri á mannauðssviði
Hrafnista

Þjónustufulltrúi í fraktdeild
DHL Express Iceland ehf

Þjónustufulltrúi í Vatnsskarðsnámu
Steypustöðin - námur ehf.

Sölusérfræðingur - Advise ehf.
Advise Business Monitor

Móttökuritari SÁÁ - sumarstarf
SÁÁ