Klíníkin Ármúla ehf.
Klíníkin Ármúla ehf.

Móttökuritari - Klíníkin Ármúla

Klíníkin Ármúla leitar að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi í starf móttökuritara. Við leitum að aðila sem nýtur þess að vinna með fólki og leggur sig fram um að skapa jákvætt andrúmsloft fyrir skjólstæðinga og samstarfsfólk. Starfið er fjölbreytt og krefjandi þar sem móttakan gegnir lykilhlutverki í daglegri starfsemi Klíníkurinnar. Hlýlegt, faglegt og traustvekjandi viðmót er því mikilvægur þáttur í starfinu sem reynir á samskiptahæfni, skipulag og lausnamiðaða nálgun.

Um starfið:

  • Starfshlutfall: 80–100%
  • Vinnutími: Virkir dagar á dagvinnutíma.
  • Ráðning er hugsuð til lengri tíma
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka skjólstæðinga og annarra gesta
  • Almenn afgreiðsla og símsvörun.
  • Tímabókanir, túlkapantanir og skráning í kerfi.
  • Móttaka tilvísana og annarra erinda.
  • Reikningagerð og meðhöndlun greiðslukrafna.
  • Daglegt uppgjör, skjalavarsla og gagnavinnsla.
  • Þátttaka í sameiginlegum verkefnum innanhúss er varða skipulag starfseminnar.
  • Ýmis almenn skrifstofustörf.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund og mjög góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
  • Nákvæm og vönduð vinnubrögð.
  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
  • Sveigjanleiki og geta til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
Advertisement published19. May 2025
Application deadline3. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Ármúli 9, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags