
Klíníkin Ármúla ehf.
Klíníkin er sérhæfð lækninga- og heilsumiðstöð og er staðsett í Ármúla 9, 108 Reykjavík. Við Klíníkina starfa þrautreyndir sérfræðilæknar og hjúkrunarfræðingar sem öll leggja sig fram við að veita persónulega þjónustu og hafa skjólstæðinga sína ávallt í öndvegi. Markmið Klíníkurinnar er að greina vanda, ráðleggja um leiðir til lausna og framkvæma nauðsynlegar aðgerðir. Samstarf reyndra lækna og hjúkrunarfræðinga með mikla starfsreynslu hérlendis og erlendis tryggir gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Aðbúnaður er til fyrirmyndar í Klíníkinni hvort sem um er að ræða læknamóttöku eða á skurðstofum og er mikil áhersla lögð á að tækjabúnaður uppfylli ströngustu kröfur á alþjóðlegan mælikvarða. Hugmyndafræði Klíníkurinnar byggist á teymisvinnu og því að sinna sérþörfum sjúklinga og veita heildarþjónustu frá greiningu, skurðaðgerð og þar til annari meðferð lýkur.
Skurðhjúkrunarfræðingur / hjúkrunarfræðingur á skurðstofu
Skurðhjúkrunarfræðingur / hjúkrunarfræðingur á skurðstofu – Klíníkin Ármúla
Klíníkin Ármúla leitar að skurðhjúkrunarfræðingi eða hjúkrunarfræðingi með áhuga á skurðhjúkrun til starfa á metnaðarfullri og ört vaxandi skurðstofueiningu. Starfið felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni við hjúkrun aðgerðarsjúklinga, undirbúning og aðstoð í skurðaðgerðum. Við leitum að einstaklingi sem vill vinna í öflugu teymi þar sem öryggi, samvinna og fagleg þróun heilbrigðisþjónustu eru höfð að leiðarljósi.
Um starfið:
- Starfshlutfall: 80–100%
- Vinnutími: Virkir dagar á dagvinnutíma.
- Ráðning er hugsuð til lengri tíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hjúkrun og umönnun aðgerðarsjúklinga fyrir, í og eftir aðgerð.
- Undirbúningur og aðstoð við skurðaðgerðir.
- Umsjón með búnaði, tækjum og skurðáhöldum.
- Teymisvinna og þátttaka í umbótastarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi skráð hjá Embætti landlæknis.
- Menntun í skurðhjúkrun er kostur, en ekki skilyrði.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði vinnubrögð.
- Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi á faglegri þróun og að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu þjónustunnar.
Advertisement published19. May 2025
Application deadline3. June 2025
Language skills

Required

Required
Location
Ármúli 9, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild/ dagdeild gigtar
Landspítali

Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á stofu kjálkaskurðlækna
Breiðaklöpp slf.

Skurðhjúkrunarfræðingur og hjúkrunarfræðingur á göngudeild augnsjúkdóma
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri á göngudeild augnsjúkdóma
Landspítali

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri - Sléttuvegur
Hrafnista

Sóltún - hjúkrunarfræðingur á næturvaktir
Sóltún hjúkrunarheimili

Leiðbeinandi - viltu hjálpa fólki að losna við verki?
OsteoStrong

Við sköpum nýja framtíð í heimaþjónustu Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið