

Móttökufulltrúi
Útlendingastofnun leitar að þjónustulunduðum móttökufulltrúa til starfa hjá stofnuninni. Verksvið móttökufulltrúa er fjölbreytt, t.a.m. afgreiðsla og ráðgjöf til þjónustuþega stofnunarinnar, símsvörun, netspjall, umsjón með myndatökum, fjölbreytt bakvinnsla og önnur tilfallandi verkefni. Móttökufulltrúi heyrir undir teymisstjóra.
Útlendingastofnun er spennandi vinnustaður á fleygiferð í stafrænni vegferð. Hjá stofnuninni starfar um 110 manna samhentur hópur á fjórum sviðum. Umfangsmesti þátturinn í starfsemi stofnunarinnar er útgáfa dvalarleyfa. Útlendingastofnun afgreiðir umsóknir um dvalarleyfi, hvort sem um er að ræða dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku, fjölskyldusameiningar, námsvistar eða vistráðningar. Þá afgreiðir stofnunin einnig vegabréfsáritanir, umsóknir um ríkisborgararétt og umsóknir um alþjóðlega vernd. Lögð er rík áhersla á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og sveigjanlegan vinnutíma með 36 stunda vinnuviku.
- Afgreiðsla og ráðgjöf til þjónustuþega
- Símsvörun
- Umsjón með myndatökum
- Þátttaka í gerð og þróun verkferla
- Bakvinnsla
- Starfa í samræmi við stefnur og markmið stofnunarinnar
- Þátttaka í teymisvinnu
- Netspjall
- Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði
- Reynsla af þjónustustarfi er mikill kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Kunnátta í einu norðurlandatungumáli
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri













