IKEA
IKEA
IKEA

Matreiðslumaður / Matráður óskast fyrir mötuneyti starfsmanna IKEA

IKEA leitar að reyndum matreiðslumanni/matráð með jákvætt hugarfar til að ganga til liðs við frábært teymi sem starfar í mötuneyti starfsfólks IKEA.

Hjá IKEA starfar fjölbreyttur hópur fólks sem vinnur daglega að framgangi hugmyndfræði IKEA “Að gera daglegt líf þægilegra fyrir sem flest”

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Undirbúningur, matreiðsla og framleiðsla í mötuneyti starfsmanna.

·         Matseðlagerð

·         Gæðaeftirlit á matvælum

·         Önnur tilfallandi störf

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Menntun í matvælaiðnaði eða öðru sambærilegu er skilyrði

·         Starfsreynsla úr matvælageiranum er skilyrði

·         Þekking á matvælaöryggi og almennt góðum starfsháttum við framleiðslu matvæla

·         Sjálfstæði og drifkraftur

·         Lipurð í samskiptum og jákvæðni

·         Færni til að vinna undir álagi

·         Almenn tölvukunnátta

Fríðindi í starfi

·         Samgöngustyrkur fyrir þá sem nýta sér vistvænan og heilsusamlegan samgöngumáta               til og frá vinnu.

·         Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi sem stendur fyrir               reglulegum viðburðum. 

·         Aðgengi að sumarbústað til einkanota.

·         Niðurgreiddur heilsusamlegur matur með vegan valkosti og salatbar.

·         Ávextir og hafragrautur í boði.

·         Heilsueflingarstyrkur ásamt frírri heilsufarsskoðun og velferðarþjónustu frá                                 utanaðkomandi fagaðila.

·         Hressandi morgunleikfimi tvisvar í viku.

·         Aðgengi að námskeiðum og fræðslu til að styrkja persónulega hæfni.

·         Skapandi og skemmtileg störf með mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi.

·         Skemmtilegir vinnufélagar.

·         Afsláttur af IKEA vörum.

 

Advertisement published3. July 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Kauptún 4, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.Kitchen workPathCreated with Sketch.Cook
Professions
Job Tags