
Eldhússtarfsmenn á Dubliner Kitchen
Dubliner leitar að ábyrgum og sjálfstæðum einstaklingi til starfa í eldhúsi.
Við leitum bæði að:
• Einstaklingi í 100% starf með ábyrgðarstöðu yfir eldhúsinu.
• Einstaklingi í hlutastarf.
Starfið felur í sér matreiðslu, undirbúning matvæla, þrif og almennt hreinlæti í eldhúsi, móttöku og afgreiðslu pantana, innkaup á hráefni og umsjón með lager og birgðastöðu.
Leitað er að einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfni, getur unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð á daglegum rekstri eldhússins.
100% starfið er unnið samkvæmt 2-2-3 vaktakerfi.
Starf í eldhúsi Dubliner felur í sér matreiðslu og undirbúning matvæla, þrif og almennt hreinlæti í eldhúsi, móttöku og afgreiðslu pantana, innkaup á hráefni og birgðum ásamt umsjón með lager og birgðastöðu. Starfsmaður sér jafnframt um að tryggja góða verkferla, skipulag og að nægar birgðir séu ávallt til staðar fyrir daglegan rekstur.
English










