Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Matráður við leikskólann Eyravellir, Neskaupstað

Eyrarvellir er átta deilda leikskóli með sex starfrækar deildir og dvelja þar um 97 börn og starfa um 30 starfsmenn. Leikskólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Eyrarvellir vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Leikskólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

Yfirmaður/Matráður í eldhúsi er starfsmaður Fjarðabyggðar og starfar undir stjórn leikskólastjóra. Matráður skal gegna starfinu samkvæmt leikskólalögum, reglugerðum, starfslýsingu, kjarasamningum og starfsmannastefnu Fjarðabyggðar, eftir því sem við á. Hann er þátttakandi í uppeldisstarfi skóla gagnvart næringu og heilsu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sér um öll almenn störf í mötuneytinu, bakstur, þrif og að farið sé eftir matseðlum sveitafélagsins.
  • Þjálfar og útdeilir verkefnum til aðstoðarmatráðs í samráði við leikskólastjóra.
  • Útbýr sérfæði fyrir þá nemendur og starfsmenn sem þess þurfa af heilsufarsástæðum.
  • Ber ábyrgð á daglegum þrifum og mælingum á hitastigi fyrir HRAUST.
  • Ber ábyrgð á samskiptum og pöntun matvæla hjá birgja.
  • Heldur þvottahúsi, búri sem og kaffistofu starfsmanna snyrtilegu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Menntun í matreiðslu er æskileg
  • Reynsla af matreiðslu er skilyrði.
Fríðindi í starfi

Um er að ræða 100 % stöðu sem matráður í eldhúsi leikskólans, starfið hentar öllum kynjum og hvetjum við áhugasama að sækja um.

Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar gefur:

Sigurlaug Björk Birgisdóttir, leikskólastjóri í síma 477-1485 [email protected] og Jóhanna Smáradóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 477-1485 eða [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 7. mars 2025. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. maí. 2025.

 
 
 
Advertisement published4. February 2025
Application deadline7. March 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Optional
Intermediate
Location
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags