Leikskólar stúdenta
Leikskólar stúdenta
Leikskólar stúdenta

Matráður í Leikskóla Félagsstofnunar stúdenta

Viltu vera hluti af lifandi vinnustað og starfa í skemmtilegu vinnuumhverfi?

Félagsstofnun stúdenta óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman matráð til starfa í eldhúsi leikskólans.

Við leitum að einstaklingi með reynslu af matreiðslu í mötuneyti eða veitingahúsi, sem býr yfir faglegum metnaði og góðri hæfni í mannlegum samskiptum. Viðkomandi ber ábyrgð á að framreiða hollan, fjölbreyttan og vandaðan mat í samræmi við kröfur um matvælaöryggi (HACCP) og reglur heilbrigðiseftirlitsins. Um fullt starf er að ræða.

Íslensku kunnátta er skilyrði.

Starfsfólk FS nýtur ýmissa fríðinda, svo sem íþróttastyrks og afslátta hjá Bóksölu stúdenta, Stúdentakjallaranum og Hámu. Leikskólinn tekur þátt í styttingu vinnuvikunnar, sem felur í sér 7 klukkustunda vinnudag.

Hreint sakavottorð er skilyrði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri Ragnhildur Ýr Jóhannsdóttir, í tölvupósti: [email protected].

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Elda og framreiða máltíðir (morgunmatur/hádegismatur/síðdegisbiti) fyrir börn, samkvæmt gildandi næringarviðmiðum
  • Tryggja að matur sé hollur, fjölbreyttur og í samræmi við þarfir barna (9 mán. - 6 ára)
  • Fylgja öllum reglum um matvælaöryggi, hreinlæti og HACCP verklag
  • Frágangur í eldhúsi og tryggja að vinnslurými sé snyrtilegt, skipulagt og að unnið sé í samræmi við lög og reglur heilbrigðiseftirlitis
  • Innkaup á hráefni og öðrum vörum fyrir eldhús leikskólans
  • Fylgja verklagsreglum leikskólans og taka þátt í umbótastarfi/námskeiðum eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Matartæknir eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi í eldhúsi, mötuneyti eða sambærilegu starfi
  • Góð þekking á matvælaöryggi, hreinlæti og HACCP verklagi
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Ábyrgð, nákvæmni og samviskusemi
  • Góð samskiptahæfni
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi

Starfsfólk FS nýtur ýmissa fríðinda í formi þróttastyrks og afslátta hjá Bóksölu stúdenta, Stúdentakjallaranum og Hámu. 

FS er með virkt starfsmannafélag sem skipuleggur viðburði og árshátíðir, þar á meðal árshátíðarferðir erlendis annað hvert ár.

Leikskólinn er lokaður milli jóla og nýjárs.

Advertisement published24. April 2026
Application deadline8. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Eggertsgata 34, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Kitchen workPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.WaiterPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Dish washing
Work environment
Professions
Job Tags