Stekkjaskóli
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli

Matráður

Stekkjaskóli óskar eftir matráði í 100% starfshlutfall frá og með 1. apríl 2026.

Matráður starfar í nýju og fullkomnu framleiðslueldhúsi skólans. Hann undirbýr og matreiðir máltíðir samkvæmt fyrirmælum yfirmanns í framleiðslueldhúsi. Starfar samkvæmt lögum og reglugerð sem við eiga og samkvæmt stefnu Sveitarfélagsins Árborgar. Matráður er staðgengill yfirmanns í framleiðslueldhúsi.

Í eldhúsinu er eldað fyrir nemendur og starfsmenn skólans en auk þess fyrir Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri, leikskólana Jötunheima og Strandheima, Viss, vinnu- og hæfingarstöð, Vinaminni, dagdvöl fyrir einstaklinga með minnissjúkdóma og Árblik, dagdvöl fyrir eldri borgara. Alls er eldað um 1.000 matarskammtar daglega.

Leitað er að metnaðarfullum, barngóðum og jákvæðum einstaklingi.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að undirbúa, matreiða, baka og framreiða mat samkvæmt fyrirmælum yfirmanns
  • Tekur á móti hráefnum, meðhöndlar það til geymslu, vinnur það fyrir matreiðslu og matreiðir eftir þörfum á viðeigandi hátt
  • Að undirbúa mat til flutnings í móttökueldhús
  • Stuðla að minni matarsóun
  • Þrífa og ganga frá að loknu starfi
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar eldhús sem yfirmaður felur
  • Er staðgengill yfirmanns í framleiðslueldhúsi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði matreiðslu
  • Reynsla af starfi í mötuneyti eða skólaeldhúsi
  • Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Þekking á HACCP gæðakerfi
  • Færni í mannlegum samskiptum
Advertisement published17. February 2026
Application deadline3. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Heiðarstekk 10
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags