Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin

Markaðs- og samskiptastjóri

Viltu leiða markaðs- og samskiptamál á fjölbreyttum og spennandi vettvangi?

Við leitum að kraftmiklum og reyndum leiðtoga í starf markaðs- og samskiptastjóra.

Við leitum að einstaklingi með sterka sýn á vörumerki, ímynd og samskipti sem hefur gaman af því að láta hugmyndir verða að veruleika. Mikilvægt er að geta horft á heildarmyndina, leitt verkefni sjálfstætt frá hugmynd til framkvæmdar og verið traustur samstarfsaðili stjórnenda og starfsfólks. Þá skiptir framsýni og áhugi á að nýta gögn, gervigreind og nýja tækni til að þróa vinnubrögð miklu máli, sem og að taka nýjum áskorunum fagnandi.

Markaðs- og samskiptastjóri ber ábyrgð á markaðs-, vörumerkja- og samskiptamálum félagsins og dótturfélaga og heyrir beint undir forstjóra. Starfið er fjölbreytt, krefjandi og skemmtilegt og unnið í nánu samstarfi við stjórnendur þvert á félagið og dótturfélögin Green Parking og Sanna Landvætti.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótun og innleiðing markaðs- og samskiptastefnu og árlegrar markaðsáætlunar
  • Ráðgjöf til stjórnenda í markaðs-, samskipta- og ímyndarmálum
  • Þróun vörumerkis Öryggismiðstöðvarinnar og dótturfélaga
  • Greining á þörfum viðskiptavina, markaðnum og samkeppnisumhverfinu sem grunnur að markaðs- og samskiptastarfi
  • Stuðningur við sölu og þjónustu með markvissu kynningar- og sölustuðningsefni.
  • Þróun og miðlun efnis á vef og samfélagsmiðlum
  • Fréttatilkynningar og fjölmiðlasamskipti
  • Innri samskipti og miðlun upplýsinga til starfsfólks
  • Þátttaka félagsins í ráðstefnum, sýningum og viðburðum með áherslu á stuðning við sölu og þjónustu
  • Fjárhagsáætlun, markaðsmælingar og greining á árangri ásamt samstarfi við auglýsingastofur og aðra þjónustuaðila
  • Nýting gervigreindar og sjálfvirkni til að þróa vinnubrögð og gera markaðs- og samskiptastarf enn skilvirkara
Menntunar- og hæfniskröfur

Við erum að leita að þér ef þú...

  • hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • hefur umfangsmikla reynslu af markaðs- og samskiptamálum og getu til að leiða verkefni sjálfstætt frá upphafi til enda
  • hefur reynslu af almannatengslum og samskiptum við fjölmiðla
  • hefur reynslu af stefnumótun, áætlanagerð og stafrænni markaðssetningu
  • sýnir frumkvæði og hefur sterka framkvæmdahæfni
  • hefur framúrskarandi samskiptahæfni og átt auðvelt með að byggja upp traust og góð tengsl við ólíkt fólk
  • getur sett þig hratt inn í ólík viðfangsefni og miðlað þeim á einfaldan og áhugaverðan hátt
  • hefur afar gott vald á íslensku í ræðu og riti og góða enskukunnáttu
  • hefur gott tæknilæsi og áhuga á að nýta gervigreind og nýja tækni markvisst í starfi
Advertisement published27. October 2026
Application deadline5. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Askalind 1, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags