

Mannauðsstjóri
Viltu taka þátt í að þróa frábæran vinnustað áfram með okkur?
Við leitum að kraftmiklum og reyndum mannauðsstjóra sem vill hafa áhrif á menningu, fólk og framtíð vinnustaðarins.
Við leitum að einstaklingi sem brennur fyrir fólki og hefur metnað til að byggja upp sterka menningu þar sem fólki líður vel, fær tækifæri til að vaxa og þróast og styðja stjórnendur við að leiða öflug teymi. Mikilvægt er að hafa skýra sýn á hvernig mannauðsmál geta stutt við árangur, en ekki síður að hafa gaman af því að bretta upp ermar, taka þátt í verkefnunum og láta hlutina gerast. Þá skiptir framsýni og áhugi á að nýta gögn, gervigreind og nýja tækni til að þróa vinnubrögð miklu máli, sem og að taka nýjum áskorunum fagnandi.
Mannauðsstjóri ber ábyrgð á mannauðsmálum félagsins og heyrir beint undir forstjóra. Starfið er fjölbreytt, krefjandi og skemmtilegt og unnið í nánu samstarfi við starfsfólk og stjórnendur þvert á félagið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mótun og innleiðing mannauðsstefnu sem styður við stefnu og gildi félagsins
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur í mannauðs-, og menningarmálum
- Ráðningar, móttaka nýliða, þjálfun og fræðsla, starfsþróun og starfslok
- Þróun stjórnenda, uppbygging leiðtogahæfni og arftakaáætlanir fyrir lykilstöður
- Ábyrgð á launavinnslu, kjaramálum, vinnurétti og jafnlaunakerfi
- Markviss vinna að starfsánægju, vinnuvernd og góðu upplýsingaflæði
- Fjárhagsáætlun, mannauðsgögn og mælikvarðar sem styðja við ákvarðanatöku, þróun og stöðugar umbætur
- Frumkvæði að því að nýta gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda ferla og þróa vinnubrögð
Við erum að leita að þér ef þú...
- hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- hefur umfangsmikla reynslu af mannauðsmálum og stjórnun
- hefur góða þekkingu á vinnurétti og kjarasamningum
- hefur reynslu af stefnumótun og breytingastjórnun
- hefur framúrskarandi samskiptahæfni og átt auðvelt með að byggja upp traust og góð tengsl við ólíkt fólk
- hefur frumkvæði, hugsar í lausnum og kemur hlutum í framkvæmd
- hefur góða greiningarhæfni og vinnur markvisst að árangri
- hefur gott tæknilæsi og áhuga á að nýta gervigreind og nýja tækni til að ná enn lengra
Icelandic
English